Eintala merkir að eitthvað eitt sé til staðar, til dæmis eitt barn. Þetta er ekkert svo flókið því við getum notað hjálparorð til að setja fyrir framan orðið eins og EITT, EINN, EIN og þá erum við komin með eintöluna. EITT barn, EINN maður, EIN kona.
Fleirtala merkir að fleiri en eitt sé til staðar, til dæmis tvö börn. Ef við setjum hjálparorðin fyrir framan til að finna fleirtölu getum við sagt TVÖ, TVEIR, TVÆR. Til dæmis TVÖ börn, TVEIR MENN, TVÆR konur.
Sum orð eru bara til í fleirtölu eða fleirtölu! Til dæmis orðin buxur, dyr, hjón, jól og skæri eru bara til í fleirtölu og orðin fólk, verð, nám og mjólk eru bara til í eintölu. Skrítið!
Hér fyrir neðan er fjölbreytt verkefni sem hægt er að nota til að spila veiðimann, nota sem minnisspil og til að para saman.
Ef þrýst er á myndina fer þú inn á leikjavef