Grunnskólinn er annað skólastigið og eina skyldustigið hér á landi. Grunnskólinn vinnur eftir aðalnámskrá sem byggir á lögum um grunnskóla nr 91/2008, hlutverk hennar er að samræma menntun barna í landinu. Námsskráin byggir á sex lykilþáttum menntunar þeir eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, og sköpun. Markmið með grunnþáttum er að efla læsi barna á samfélagið, menningu, umhverfi og náttúru. Jafnframt stuðla grunnþættir að framtíðarsýn, getu og vilja til þátttöku í samfélaginu ásamt því að styðja við þróun og breytingu í framtíðar samfélagi. Grunnþættirnir eru hugsaðir þannig að þeir undirstriki meginatriði í almennri menntun og stuðli að meiri samfellu skólastiga (Aðalnámskrá grunnskólanna, 2011). Við upphaf grunnskólagöngu hefst nýr kafli á æviskeiði barns og getur það verið ansi spennandi bæði fyrir börn og foreldra.
|
|
Guðlaug Margrét Dagbjartsdóttir og Salóme Huld Gunnarsdóttir
© 2020