Salóme Huld GunnarsdóttirÉg er gift, fjögurra barna móðir. Ég hef í gegnum tíðina starfað mikið með fötluðu fólki og varð það kveikjan að því að ég skráði mig í nám í þroskaþjálfafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, hustið 2017. Eftir vettvangsnám á fjórða misseri kviknaði áhugi minn á að vinna aðalega með börnum á grunnskólaaldri.
|
Guðlaug Margrét DagbjartsdóttirÉg er gift tveggja barna móðir. Ég útskrifaðist sem stúdent úr Fjölbrautaskóla Suðurlands árið 2001. Eftir útskrft vann ég með börnum bæði á leikskóla og síðar sem dagforeldri. Ég ætlaði mér alltaf að fara í Háskóla fljótlega eftir útskrift en tíminn leið og áður en ég vissi af voru liðin 16 ár. Áramótin 2017 ákvað ég að nú væri komið að því að ég skyldi velja mér nám. Ég hóf nám við þroskaþjálfafræði á haustönn 2017. Ég valdi þroskaþjálfafræði því ég hef mikinn áhuga á mannlegum fjölbreytileika.
|
Guðlaug Margrét Dagbjartsdóttir og Salóme Huld Gunnarsdóttir
© 2020