Á meðan við vorum að vinna þetta verkefni fundum við fjölbreyttar heimasíður sem henta í óhefðbundinni kennslu sem okkur fannst sniðugt að safna saman á einn stað.
Á vefsíðunni www.vigfusina.is er hægt að finna margar skemmtilegar hugmyndir af verkefnum fyrir leikskóla og yngri bekki grunnskóla.
Á facebook má finna margar síður þar sem kennsla er gerð eins lifandi og mögulegt er. Nálgun á kennsluefni er því á annan hátt heldur en í gegnum skólabækur. Að því sögðu mælum við með Út fyrir bókina og kennsluefni fyrir fjöruga krakka
Margir kjósa að nota tækni við kennslu. Staðreyndin er sú að símar og önnur snjalltæki eru orðin hluti af okkar daglega lífi og þar er skólalífið ekki undanskilið. Við mælum með Mímisbrunnur til að finna upplýsingar um forrit, smáforrit, vefi og tölvuleiki fyrir krakka í námi og leik. Hentar börnum í leik og grunnskóla.
Frístundalæsi- handbók fyrir foreldra - fristundalaesi.reykjavik.is/handbok-fyrir-foreldra/
Vefurinn www.paxel123.com er leikavefur ætlaður nemendum á leik- og grunnskólaaldri sem eru að stíga sín fyrstu skref í því að vinna með orð og hugtök tengd móðurmáli og stærðfræði. Vefsíðan er á 9 tungumálum og hentar því einnig nemendum af erlendum uppruna.
PECS er myndrænt boðskiptakerfi, barn lærir að nota myndir til að tjá sig með í stað talmáls. PECS var þróað fyrir börn með einhverfu. Hér má finna PECS myndagrunn
Guðlaug Margrét Dagbjartsdóttir og Salóme Huld Gunnarsdóttir
© 2020