Ritun stafa og tákna var áður fyrr talin grunnþáttur þess að varðveita tungumál og menningu þjóðarinnar. Þegar pappír var ekki til notuðu menn skinn, steina og tré til að skrifa á og þannig varðveittist þekking og kunnátta á milli kynslóða. Gott þykir að hafa fallega rithönd en það tengist ekki gáfum eða getu á neinn hátt. Hver hefur ekki heyrt að þeir sem skrifi illa séu með læknaskrift. Í verkefnunum að neðan er hægt að æfa sig að skrifa stafi og æfa fínhreyfingar með blýantinn. Þegar maður æfir sig að skrifa er betra að flýta sér hægt!
|
Ef þrýst er á myndina fer þú inn á leikjavef
|
Öll verkefni sem eru stjörnumerkt * koma frá Sérdeild Sunnulækjarskóla